Nú er ég búin með fyrsta árið í málvísindum í HÍ. Fyrir þá sem þurfa smá útskýringu eru málvísindi í stuttu máli fræðigrein um tungumál, hvernig þau virka og hvernig þau eru uppbyggð. Mér finnst þetta ótrúlega skemmtilegt og spennandi nám og það hefur gengið vel hingað til.
Í sumar er ég svo bara búin að njóta lífsins. Ég og vinir mínir förum út að hlaupa 2-3x í viku sem mér finnst æðislegt. Við förum oftast í Elliðaárdalinn og stefnum á að geta hlaupið og hjólað/hjólastólað?...10 km í ágústlok. Lengsta vegalengd sem við höfum farið í sumar er ca. 6-7 km. svo það styttist í að við náum markmiðinu. Það er svo gott að komast út og hreyfa sig, mér finnst það hafa hjálpað mér mjög mikið, bæði andlega og líkamlega. Núna kemst ég líka frekar á milli staða á hjólastólnum.
Svona í lokin verð ég að segja ykkur frá þáttaröð sem ég er búin að horfa á í sumar. Þættirnir heita Wentworth og fjalla um konur í fangelsi í Ástralíu. Serían byrjar hægt en hún er svo spennandi að ég spændi í gegnum fjórar þáttaraðir á svona mánuði. Svo ef ykkur vantar eitthvað til að horfa á mæli ég eindregið með Wentworth.
Ég ætla að reyna að blogga oftar, fer í nokkrar ferðir bráðum og ætla að blogga um þær og svo reyni ég kannski að færa ykkur fréttir í haust hvernig gengur í HÍ.