þriðjudagur, 24. júlí 2018

Bloggdraugurinn rís upp frá dauðum

Hæhæ! Þetta er bloggkúkurinn Jóna, sem ætlaði að blogga meira og nei, sko, nýtt blogg, bara ári seinna! Ég sagði í seinasta bloggi (júlí/ágúst 2017) að mig langaði að "hlaupa" 10 km en ÓVÆNT VONBRIGÐI (því þetta er ekki óvænt ánægja, þið skiljið), ég gerði það aldrei. En NÚNA verð ég að gera það því ég er búin að skrá mig í Reykjavíkurmaraþonið.  Nú er loksins komið að því að reyna að gefa eitthvað til baka, en fyrir nokkrum árum voru þónokkrir sem hlupu fyrir mig og ég keypti mér rafmagnshjól til að setja á stólinn fyrir peninginn sem safnaðist. Ég þakka öllum þeim sem hlupu fyrir mig og gáfu fé til styrktar kærlega fyrir, það er ótrúlegt hvað fólk getur verið hjálpsamt, meira að segja fólk sem þekkir mann ekki neitt.  En í ár ætla ég semsagt að hlaupa fyrir SEM (Samtök endurhæfðra mænuskaddaðra) en markmið þeirra er að: "efla samhjálp mænuskaddaðra, vinna að auknum réttindum þeirra og bættri aðstöðu í þjóðfélaginu" (tekið af www.sem.is). Ég er sjálf í SEM og mér finnst þau hafa reynst mér mjög vel, auk þess sem félög eins og SEM hjálpa fólki að vera virkir meðlimir í þjóðfélaginu, sem er gott fyrir alla.
Svo ef það er eitthvað sem þið hafið áhuga á að styrkja þá megiði endilega gera það.
Ég er með svona...einhvers konar tímamarkmið...ég er búin að komast að því að þegar ég rúlla á jafnsléttu (jafnslétta á Íslandi er samt yfirleitt einhver halli upp eða niður, svo þetta er svona til eða frá) er ég eiginlega á gönguhraða, sem er u.þ.b. 5 km/klst. Svo allt í kringum 2 tíma væri alveg frábært í mínum huga (þó ég svitni bara við tilhugsunina um að rúlla samfellt í 2 tíma).

Ég ætla að REYNA að setja inn einhverjar bloggfærslur en ef ekki þá er bara ár í næsta blogg ;)
















sunnudagur, 30. júlí 2017

Málvísindi og hlaup

Jæja...það er allt of langt síðan ég skrifaði síðast svo ég ætla að reyna að koma með einhverjar fréttir.
 Nú er ég búin með fyrsta árið í málvísindum í HÍ.  Fyrir þá sem þurfa smá útskýringu eru málvísindi í stuttu máli fræðigrein um tungumál, hvernig þau virka og hvernig þau eru uppbyggð.  Mér finnst þetta ótrúlega skemmtilegt og spennandi nám og það hefur gengið vel hingað til. 

Í sumar er ég svo bara búin að njóta lífsins.  Ég og vinir mínir förum út að hlaupa 2-3x í viku sem mér finnst æðislegt.  Við förum oftast í Elliðaárdalinn og stefnum á að geta hlaupið og hjólað/hjólastólað?...10 km í ágústlok.  Lengsta vegalengd sem við höfum farið í sumar er ca. 6-7 km. svo það styttist í að við náum markmiðinu.  Það er svo gott að komast út og hreyfa sig, mér finnst það hafa hjálpað mér mjög mikið, bæði andlega og líkamlega.  Núna kemst ég líka frekar á milli staða á hjólastólnum.  

Svona í lokin verð ég að segja ykkur frá þáttaröð sem ég er búin að horfa á í sumar.  Þættirnir heita Wentworth og fjalla um konur í fangelsi í Ástralíu.  Serían byrjar hægt en hún er svo spennandi að ég spændi í gegnum fjórar þáttaraðir á svona mánuði. Svo ef ykkur vantar eitthvað til að horfa á mæli ég eindregið með Wentworth.  

Ég ætla að reyna að blogga oftar, fer í nokkrar ferðir bráðum og ætla að blogga um þær og svo reyni ég kannski að færa ykkur fréttir í haust hvernig gengur í HÍ.  

 




mánudagur, 22. ágúst 2016

Um útskriftina (nokkrum mánuðum of sein)

Okei...ég byrjaði á þessu bloggi fyrir lööööngu (einhvern tímann í maí) og auðvitað gleymdi ég að klára það þangað til núna, hahaha! En ég ætla samt að setja það inn, fyrir þá sem vilja lesa.



Hæhæ! Nú er ég útskrifuð úr MH!  Ég var svo stressuð fyrir útskriftardeginum að ég sofnaði ekki fyrr en um sjöleytið um morguninn.  En þetta reddaðist, ég tók eina róandi fyrir athöfnina og allt gekk vel.  Þó að athöfnin hafi verið löng fannst mér hún samt skemmtileg og ég naut dagsins í botn.  Þar sem veislan mín var daginn eftir fór ég í veislur til vina minna og það var svo gaman að geta verið með þeim og fagnað deginum okkar saman.  Ég fékk líka að halda nýstúdentsræðu ásamt skólasystur minni Apríl, ég set nokkrar myndir frá útskriftinni og myndband af ræðunni inn.



Með kennarakoss á kinn


Ég og Valdís, systir mín





Ég og fjölskylda mín - alltaf tilbúin

                                                                               

Útskriftarræðan

                                                             

mánudagur, 2. maí 2016

Dimmitering, táknmál og aðgerð

Hæhæ! Ég veit að það er mjöööög langt síðan ég hef skrifað en mér fannst ég ekki hafa mikið að segja.  En það er sitthvað sem mig langar að segja ykkur núna.  Ég er að útskrifast núna 28. maí úr MH og ég er mjög spennt! Ég dimmiteraði síðasta föstudag og dagurinn í skólanum var mjög skemmtilegur, ég og vinir mínir vorum ofurhetjur sem tengdust MH (allt mjög nördalegt auðvitað) og við gerðum atriði sem mér fannst heppnast mjög vel.  Ég táraðist smá þegar stelpurnar í brúðarkjólunum (annar hópur) kom inn á sviðið með sitt atriði og lagið All you need is love.  Þá varð ég nú að knúsa Garðar, besta vin minn.  Ég trúi því ekki að þetta sé að verða búið, þessi menntaskólaár hafa liðið svo hratt! En auðvitað tekur bara eitthvað annað spennandi við.  Ég er svo þakklát fyrir starfsfólkið í MH og nemendur sem hafa hjálpað mér og ég hef aldrei fundið fyrir því að einhver komi verr fram við mig eða eitthvað svoleiðis vegna þess að ég er í hjólastól.  Ég lít þannig á það að enginn hugsi um mig sem "stelpuna í hjólastólnum" um leið og það byrjar að tala við mig, enda er ég ósköp venjuleg eins og flestir.

Ég set myndbandið örugglega inn á bloggið mitt mjög bráðlega, mæli með því að horfa á það.

Svo var Leo að komast inn í háskóla! Ég er svo ótrúlega stolt af honum, það er mjög erfitt að komast inn í háskóla í Perú, sérstaklega inn í ríkisskólana.  Og já, ég skrifaði þetta rétt.  Í Perú eru það ríkisháskólarnir sem eru eftirsóknarverðastir, þar sem maður þarf ekki að borga námsgjöld, en mjöööög fáir komast inn þar sem inntökuprófið er mjög erfitt.  Það má kannski segja að ríkið sé að fjárfesta í bestu nemendunum og þess vegna þurfi þeir ekki að borga námsgjöld.  Leo er í ríkisháskóla sem heitir San Marcos og hann er að læra verkfræði ( og úff, ég hef ekki hugmynd um hvað þetta heitir á íslensku, en mig minnir að á spænsku sé þetta "ingeniería mecánica de fluidos").  Þetta er allavega eitthvað rosaflókið sem tungumálaáhugamaðurinn ég hef ekkert vit á.

Talandi um tungumál, ég var að gera nýtt táknmálsmyndband, sem var hluti af verkefni í 2. áfanga í táknmáli (er ekkert búin að vera rosalega dugleg við hin verkefnin samt, shhhhh....).  En ég set myndbandið hérna ef þið viljið sjá, ég er auðvitað bara byrjandi, svo málfræðin er ekki góð en vonandi skilst innihaldið samt.





Á föstudaginn er ég svo að fara í aðgerð, ég er búin að vera smá slöpp í fingrunum og finnst gripið ekki vera eins gott og áður svo ég fór í segulómskoðun.  Það virðist ekki vera alveg nógu gott flæði á mænuvökvanum (ef ég skil þetta rétt), og það gæti verið að hafa áhrif á hendurnar á mér. Svo aðgerðin ætti að hjálpa til með það, svo ég hlakka bara til að drífa það af.  Ég reyndi að vera jákvæð með það en ég brotnaði saman eitt kvöldið þegar vinir mínir voru hjá mér, því auðvitað er erfitt að fara í aðgerðir og þurfa að jafna sig á þeim.  En það er samt svo frábært starfsfólk á Landspítalanum að mér finnst ég ekki þurfa að hafa neinar áhyggjur.  Svo er bara kósý að fá fólk í heimsókn (sem kemur með nammi og mat ;) ) og geta legið upp í rúmi og horft á sjónvarpið.  Ég læt ykkur svo vita hvernig aðgerðin gengur og svoleiðis.

Takk fyrir að lesa!

miðvikudagur, 21. október 2015

ZUMBA!

Jæja, nú er ég loksins búin að klippa þessi zumba-myndbönd! Það tók mig frekar langan tíma og ég vildi að þetta væri flottara en það verður bara að hafa það að myndböndin séu í símagæðum ;) Lögin eru líka ekki alveg fullkomlega í takt við myndbandið því ég þurfti að bæta þeim inn á því að hljóðið í myndböndunum var svo óskýrt.  Svo kemur eitthvað credits í einu myndbandinu en það á ekkert að vera, hahaha! Annars er ég bara sátt með útkomuna og þið getið allavega séð hvernig það er að vera í zumba í hjólastól og hvernig maður reddar sér ;)

P.S. þar sem þetta eru myndbönd sem eru tekin á síma eru þau mjög óskýr en það er örlítið skárra ef maður hækkar lausnina á þeim á YouTube ;)









fimmtudagur, 15. október 2015

Táknmál er málið!

Hæhæ! Ég ætti að vera að læra núna en þar sem ég er svo mikil Jóna ákvað ég að gera eitthvað allt annað (sorry með mig).  Þannig er mál með vexti að ég er komin með nýtt áhugamál...táknmál.  Ég er í fyrsta táknmálsáfanganum í MH og þetta er bara ótrúlega skemmtilegt! Ég vildi óska þess að ég hefði lært þetta í grunnskóla, t.d. í staðinn fyrir lífsleikni, því mér finnst eiginlega bara fáránlegt að geta ekki einu sinni talað við samlanda sína! Auðvitað er það mjög einangrandi að vera döff manneskja (heyrnarskert/heyrnarlaus manneskja sem tilheyrir samfélagi sem notar táknmál) í samfélagi þar sem flestir kunna ekki táknmál.  Það væri líka ótrúlega fínt ef að allir kynnu táknmál, þá væru kannski aðeins minni læti í skólum og það er t.d. mjög hentugt fyrir þá sem fara mikið á skemmtistaði þar sem enginn heyrir neitt í manni fyrir tónlistinni. Þá er fínt að geta sagt að maður þurfi að fara á klósettið eða sé til í einn kaldan á táknmáli.

Ég er líka þakklát fyrir það að táknmál sé til því þetta er mjög skemmtilegt tjáningarform sem mér finnst ég geta notið mjög vel.  mannleg samskipti felast mjög mikið í líkamstjáningu og stundum pirrar það mig að geta ekki notað allan líkamann til þess að tjá sig, en það er mjög mikilvægt í t.d. leiklist. Með táknmálinu get ég dansað og notað efri líkamann og svipbrigði til að tjá mig.


Gígja, táknmálskennarinn okkar, kenndi hópnum táknmálsdans um daginn og núna er ég búin að vera að æfa mig mikið heima (þetta er erfiðara en ég hélt) og langar að deila þessu með ykkur og vonandi get ég sýnt ykkur hvað táknmál er frábært.  Ég er nú ekki með allar hreyfingar á hreinu né svipbrigði (sem er mjöööög stór hluti af táknmáli) en vonandi kemur þetta með tímanum.  Ég leyfði mér að vera pínu dívuleg í handahreyfingum (eða mér fannst það, hahaha) þar sem þetta er lag með Páli Óskari og hann er auðvitað bara díva Íslands.





fimmtudagur, 8. október 2015

Þriðja aðgerðin og nýtt líf

Hæhæ! Ótrúlega langt síðan ég skrifaði! Jæja, nú eru tæplega 2 mánuðir síðan ég fór í aðgerðina sem er búin að breyta lífi mínu.  Þar sem ég var með svo mikinn spasma ákvað ég að fá lyfjadælu eða lyfjabrunn.  Þá dælast spasmalyfin beint í mænugöngin og ég þarf ekki að taka spasmatöflur.  Eins og læknirinn minn á Grensás útskýrði það fyrir mér virka töflur 10% á spasmann og 90% á hausinn (það er, spasminn minnkar ekki mikið en ég verð mjög þreytt og sljó) en dælan virkar öfugt svo að spasminn er miklu, miklu minni og ég finn ekki lengur fyrir þessari lyfjaþreytu.  Þessi dæla er búin að breyta lífi mínu! Ég er miklu hressari, hef meiri matarlyst og meiri þrótt til þess að gera það sem mig langar að gera.  Bakverkirnir minnkuðu og sömuleiðis taugaverkirnir í löppunum.  Þegar ég var búin að jafna mig eftir aðgerðina leið mér eins og gamla Jóna væri loksins komin aftur.

Aðgerðin gekk mjög vel, ég fékk kæruleysislyf fyrir aðgerðina og ég mundi ekki eftir mér fyrr en ég vaknaði úr aðgerðinni.  Mamma sagði að ég hefði steinsofnað og ég man ekkert eftir því þegar nálin var sett upp eða þegar ég var svæfð.  Ég var nokkra daga að jafna mig eftir aðgerðina en þar sem skurðirnir eru á lamaða svæðinu var mér eiginlega ekkert illt, en fannst ég samt vera með einhver óþægindi.  Ég vildi að ég hefði ekki verið svona þrjósk og farið miklu fyrr í þessa aðgerð en ég er bara fegin að vera búin að því núna!

Hér koma svo nokkrar myndir sem útskýra kannski smá hvernig þetta er og hvernig dælan lítur út.  Ég var skorin á tveimur stöðum, á maganum þar sem dælan er og frekar neðarlega á bakinu þar sem rörið eða leiðslan er sem leiðir lyfið frá dælunni og í mænugöngin.

P.S. ég er búin að fara í gegnum ansi marga háraliti eftir að ég kom heim frá Ítalíu, svo ég var bleikhærð þegar ég fór í aðgerðina.
Maður verður að brosa yfir velheppnaðri aðgerð
                                                             
Aftan á

Framan á

Þarna sést dælan (var í nýrnarannsókn í lok ágúst og þá var þessi mynd tekin)
Svona lítur skurðurinn út og það er hægt að sjá móta fyrir dælunni

Svona lítur dælan út
Takk fyrir að lesa!