Hæhæ! Ótrúlega langt síðan ég skrifaði! Jæja, nú eru tæplega 2 mánuðir síðan ég fór í aðgerðina sem er búin að breyta lífi mínu. Þar sem ég var með svo mikinn spasma ákvað ég að fá lyfjadælu eða lyfjabrunn. Þá dælast spasmalyfin beint í mænugöngin og ég þarf ekki að taka spasmatöflur. Eins og læknirinn minn á Grensás útskýrði það fyrir mér virka töflur 10% á spasmann og 90% á hausinn (það er, spasminn minnkar ekki mikið en ég verð mjög þreytt og sljó) en dælan virkar öfugt svo að spasminn er miklu, miklu minni og ég finn ekki lengur fyrir þessari lyfjaþreytu. Þessi dæla er búin að breyta lífi mínu! Ég er miklu hressari, hef meiri matarlyst og meiri þrótt til þess að gera það sem mig langar að gera. Bakverkirnir minnkuðu og sömuleiðis taugaverkirnir í löppunum. Þegar ég var búin að jafna mig eftir aðgerðina leið mér eins og gamla Jóna væri loksins komin aftur.
Aðgerðin gekk mjög vel, ég fékk kæruleysislyf fyrir aðgerðina og ég mundi ekki eftir mér fyrr en ég vaknaði úr aðgerðinni. Mamma sagði að ég hefði steinsofnað og ég man ekkert eftir því þegar nálin var sett upp eða þegar ég var svæfð. Ég var nokkra daga að jafna mig eftir aðgerðina en þar sem skurðirnir eru á lamaða svæðinu var mér eiginlega ekkert illt, en fannst ég samt vera með einhver óþægindi. Ég vildi að ég hefði ekki verið svona þrjósk og farið miklu fyrr í þessa aðgerð en ég er bara fegin að vera búin að því núna!
Hér koma svo nokkrar myndir sem útskýra kannski smá hvernig þetta er og hvernig dælan lítur út. Ég var skorin á tveimur stöðum, á maganum þar sem dælan er og frekar neðarlega á bakinu þar sem rörið eða leiðslan er sem leiðir lyfið frá dælunni og í mænugöngin.
P.S. ég er búin að fara í gegnum ansi marga háraliti eftir að ég kom heim frá Ítalíu, svo ég var bleikhærð þegar ég fór í aðgerðina.
 |
| Maður verður að brosa yfir velheppnaðri aðgerð |
 |
| Aftan á |
 |
| Framan á |
 |
| Þarna sést dælan (var í nýrnarannsókn í lok ágúst og þá var þessi mynd tekin) |
 |
| Svona lítur skurðurinn út og það er hægt að sjá móta fyrir dælunni |
 |
| Svona lítur dælan út |
Takk fyrir að lesa!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli