miðvikudagur, 21. október 2015

ZUMBA!

Jæja, nú er ég loksins búin að klippa þessi zumba-myndbönd! Það tók mig frekar langan tíma og ég vildi að þetta væri flottara en það verður bara að hafa það að myndböndin séu í símagæðum ;) Lögin eru líka ekki alveg fullkomlega í takt við myndbandið því ég þurfti að bæta þeim inn á því að hljóðið í myndböndunum var svo óskýrt.  Svo kemur eitthvað credits í einu myndbandinu en það á ekkert að vera, hahaha! Annars er ég bara sátt með útkomuna og þið getið allavega séð hvernig það er að vera í zumba í hjólastól og hvernig maður reddar sér ;)

P.S. þar sem þetta eru myndbönd sem eru tekin á síma eru þau mjög óskýr en það er örlítið skárra ef maður hækkar lausnina á þeim á YouTube ;)









fimmtudagur, 15. október 2015

Táknmál er málið!

Hæhæ! Ég ætti að vera að læra núna en þar sem ég er svo mikil Jóna ákvað ég að gera eitthvað allt annað (sorry með mig).  Þannig er mál með vexti að ég er komin með nýtt áhugamál...táknmál.  Ég er í fyrsta táknmálsáfanganum í MH og þetta er bara ótrúlega skemmtilegt! Ég vildi óska þess að ég hefði lært þetta í grunnskóla, t.d. í staðinn fyrir lífsleikni, því mér finnst eiginlega bara fáránlegt að geta ekki einu sinni talað við samlanda sína! Auðvitað er það mjög einangrandi að vera döff manneskja (heyrnarskert/heyrnarlaus manneskja sem tilheyrir samfélagi sem notar táknmál) í samfélagi þar sem flestir kunna ekki táknmál.  Það væri líka ótrúlega fínt ef að allir kynnu táknmál, þá væru kannski aðeins minni læti í skólum og það er t.d. mjög hentugt fyrir þá sem fara mikið á skemmtistaði þar sem enginn heyrir neitt í manni fyrir tónlistinni. Þá er fínt að geta sagt að maður þurfi að fara á klósettið eða sé til í einn kaldan á táknmáli.

Ég er líka þakklát fyrir það að táknmál sé til því þetta er mjög skemmtilegt tjáningarform sem mér finnst ég geta notið mjög vel.  mannleg samskipti felast mjög mikið í líkamstjáningu og stundum pirrar það mig að geta ekki notað allan líkamann til þess að tjá sig, en það er mjög mikilvægt í t.d. leiklist. Með táknmálinu get ég dansað og notað efri líkamann og svipbrigði til að tjá mig.


Gígja, táknmálskennarinn okkar, kenndi hópnum táknmálsdans um daginn og núna er ég búin að vera að æfa mig mikið heima (þetta er erfiðara en ég hélt) og langar að deila þessu með ykkur og vonandi get ég sýnt ykkur hvað táknmál er frábært.  Ég er nú ekki með allar hreyfingar á hreinu né svipbrigði (sem er mjöööög stór hluti af táknmáli) en vonandi kemur þetta með tímanum.  Ég leyfði mér að vera pínu dívuleg í handahreyfingum (eða mér fannst það, hahaha) þar sem þetta er lag með Páli Óskari og hann er auðvitað bara díva Íslands.





fimmtudagur, 8. október 2015

Þriðja aðgerðin og nýtt líf

Hæhæ! Ótrúlega langt síðan ég skrifaði! Jæja, nú eru tæplega 2 mánuðir síðan ég fór í aðgerðina sem er búin að breyta lífi mínu.  Þar sem ég var með svo mikinn spasma ákvað ég að fá lyfjadælu eða lyfjabrunn.  Þá dælast spasmalyfin beint í mænugöngin og ég þarf ekki að taka spasmatöflur.  Eins og læknirinn minn á Grensás útskýrði það fyrir mér virka töflur 10% á spasmann og 90% á hausinn (það er, spasminn minnkar ekki mikið en ég verð mjög þreytt og sljó) en dælan virkar öfugt svo að spasminn er miklu, miklu minni og ég finn ekki lengur fyrir þessari lyfjaþreytu.  Þessi dæla er búin að breyta lífi mínu! Ég er miklu hressari, hef meiri matarlyst og meiri þrótt til þess að gera það sem mig langar að gera.  Bakverkirnir minnkuðu og sömuleiðis taugaverkirnir í löppunum.  Þegar ég var búin að jafna mig eftir aðgerðina leið mér eins og gamla Jóna væri loksins komin aftur.

Aðgerðin gekk mjög vel, ég fékk kæruleysislyf fyrir aðgerðina og ég mundi ekki eftir mér fyrr en ég vaknaði úr aðgerðinni.  Mamma sagði að ég hefði steinsofnað og ég man ekkert eftir því þegar nálin var sett upp eða þegar ég var svæfð.  Ég var nokkra daga að jafna mig eftir aðgerðina en þar sem skurðirnir eru á lamaða svæðinu var mér eiginlega ekkert illt, en fannst ég samt vera með einhver óþægindi.  Ég vildi að ég hefði ekki verið svona þrjósk og farið miklu fyrr í þessa aðgerð en ég er bara fegin að vera búin að því núna!

Hér koma svo nokkrar myndir sem útskýra kannski smá hvernig þetta er og hvernig dælan lítur út.  Ég var skorin á tveimur stöðum, á maganum þar sem dælan er og frekar neðarlega á bakinu þar sem rörið eða leiðslan er sem leiðir lyfið frá dælunni og í mænugöngin.

P.S. ég er búin að fara í gegnum ansi marga háraliti eftir að ég kom heim frá Ítalíu, svo ég var bleikhærð þegar ég fór í aðgerðina.
Maður verður að brosa yfir velheppnaðri aðgerð
                                                             
Aftan á

Framan á

Þarna sést dælan (var í nýrnarannsókn í lok ágúst og þá var þessi mynd tekin)
Svona lítur skurðurinn út og það er hægt að sjá móta fyrir dælunni

Svona lítur dælan út
Takk fyrir að lesa!