Ég set myndbandið örugglega inn á bloggið mitt mjög bráðlega, mæli með því að horfa á það.
Svo var Leo að komast inn í háskóla! Ég er svo ótrúlega stolt af honum, það er mjög erfitt að komast inn í háskóla í Perú, sérstaklega inn í ríkisskólana. Og já, ég skrifaði þetta rétt. Í Perú eru það ríkisháskólarnir sem eru eftirsóknarverðastir, þar sem maður þarf ekki að borga námsgjöld, en mjöööög fáir komast inn þar sem inntökuprófið er mjög erfitt. Það má kannski segja að ríkið sé að fjárfesta í bestu nemendunum og þess vegna þurfi þeir ekki að borga námsgjöld. Leo er í ríkisháskóla sem heitir San Marcos og hann er að læra verkfræði ( og úff, ég hef ekki hugmynd um hvað þetta heitir á íslensku, en mig minnir að á spænsku sé þetta "ingeniería mecánica de fluidos"). Þetta er allavega eitthvað rosaflókið sem tungumálaáhugamaðurinn ég hef ekkert vit á.
Talandi um tungumál, ég var að gera nýtt táknmálsmyndband, sem var hluti af verkefni í 2. áfanga í táknmáli (er ekkert búin að vera rosalega dugleg við hin verkefnin samt, shhhhh....). En ég set myndbandið hérna ef þið viljið sjá, ég er auðvitað bara byrjandi, svo málfræðin er ekki góð en vonandi skilst innihaldið samt.
Á föstudaginn er ég svo að fara í aðgerð, ég er búin að vera smá slöpp í fingrunum og finnst gripið ekki vera eins gott og áður svo ég fór í segulómskoðun. Það virðist ekki vera alveg nógu gott flæði á mænuvökvanum (ef ég skil þetta rétt), og það gæti verið að hafa áhrif á hendurnar á mér. Svo aðgerðin ætti að hjálpa til með það, svo ég hlakka bara til að drífa það af. Ég reyndi að vera jákvæð með það en ég brotnaði saman eitt kvöldið þegar vinir mínir voru hjá mér, því auðvitað er erfitt að fara í aðgerðir og þurfa að jafna sig á þeim. En það er samt svo frábært starfsfólk á Landspítalanum að mér finnst ég ekki þurfa að hafa neinar áhyggjur. Svo er bara kósý að fá fólk í heimsókn (sem kemur með nammi og mat ;) ) og geta legið upp í rúmi og horft á sjónvarpið. Ég læt ykkur svo vita hvernig aðgerðin gengur og svoleiðis.
Takk fyrir að lesa!
Vá flott hjá þér táknmálsverkefnið! Þarf að drulla mér í að gera mitt
SvaraEyðaHahahah, takk, Unnur! Þú rúllar því upp! :*
Eyða