sunnudagur, 30. júlí 2017

Málvísindi og hlaup

Jæja...það er allt of langt síðan ég skrifaði síðast svo ég ætla að reyna að koma með einhverjar fréttir.
 Nú er ég búin með fyrsta árið í málvísindum í HÍ.  Fyrir þá sem þurfa smá útskýringu eru málvísindi í stuttu máli fræðigrein um tungumál, hvernig þau virka og hvernig þau eru uppbyggð.  Mér finnst þetta ótrúlega skemmtilegt og spennandi nám og það hefur gengið vel hingað til. 

Í sumar er ég svo bara búin að njóta lífsins.  Ég og vinir mínir förum út að hlaupa 2-3x í viku sem mér finnst æðislegt.  Við förum oftast í Elliðaárdalinn og stefnum á að geta hlaupið og hjólað/hjólastólað?...10 km í ágústlok.  Lengsta vegalengd sem við höfum farið í sumar er ca. 6-7 km. svo það styttist í að við náum markmiðinu.  Það er svo gott að komast út og hreyfa sig, mér finnst það hafa hjálpað mér mjög mikið, bæði andlega og líkamlega.  Núna kemst ég líka frekar á milli staða á hjólastólnum.  

Svona í lokin verð ég að segja ykkur frá þáttaröð sem ég er búin að horfa á í sumar.  Þættirnir heita Wentworth og fjalla um konur í fangelsi í Ástralíu.  Serían byrjar hægt en hún er svo spennandi að ég spændi í gegnum fjórar þáttaraðir á svona mánuði. Svo ef ykkur vantar eitthvað til að horfa á mæli ég eindregið með Wentworth.  

Ég ætla að reyna að blogga oftar, fer í nokkrar ferðir bráðum og ætla að blogga um þær og svo reyni ég kannski að færa ykkur fréttir í haust hvernig gengur í HÍ.  

 




4 ummæli:

  1. Gaman að heyra frá þér. Ég datt inn í seríu í sjónvarpi Símans sem heitir The handsmaid´s tale. Mæli sterklega með henni ef þig vantar eitthvað bitastætt. Gangi þér frábærlega í hreyfiprógramminnu...það er svo mikilvægt :)

    SvaraEyða
  2. Þú ert flott í því sem þú tekur þér fyrir hendur mín kæra :) Hlakka til að fylgjast með þér :)

    SvaraEyða
  3. Gaman að heyra frá þér og því sem þú ert að aðhafast. Kemur ekki á óvart að þér þyki málvísindi áhugaverð. Gangi þér vel.

    SvaraEyða
  4. Gaman að sjá hvað þú ert að bauka, Jóna Kristín. Hlakka til að halda áfram að fylgjast með blogginu þínu :-) Gangi þér allt í haginn kæra frænka. Kveðja að vestan :-)

    SvaraEyða