þriðjudagur, 24. júlí 2018

Bloggdraugurinn rís upp frá dauðum

Hæhæ! Þetta er bloggkúkurinn Jóna, sem ætlaði að blogga meira og nei, sko, nýtt blogg, bara ári seinna! Ég sagði í seinasta bloggi (júlí/ágúst 2017) að mig langaði að "hlaupa" 10 km en ÓVÆNT VONBRIGÐI (því þetta er ekki óvænt ánægja, þið skiljið), ég gerði það aldrei. En NÚNA verð ég að gera það því ég er búin að skrá mig í Reykjavíkurmaraþonið.  Nú er loksins komið að því að reyna að gefa eitthvað til baka, en fyrir nokkrum árum voru þónokkrir sem hlupu fyrir mig og ég keypti mér rafmagnshjól til að setja á stólinn fyrir peninginn sem safnaðist. Ég þakka öllum þeim sem hlupu fyrir mig og gáfu fé til styrktar kærlega fyrir, það er ótrúlegt hvað fólk getur verið hjálpsamt, meira að segja fólk sem þekkir mann ekki neitt.  En í ár ætla ég semsagt að hlaupa fyrir SEM (Samtök endurhæfðra mænuskaddaðra) en markmið þeirra er að: "efla samhjálp mænuskaddaðra, vinna að auknum réttindum þeirra og bættri aðstöðu í þjóðfélaginu" (tekið af www.sem.is). Ég er sjálf í SEM og mér finnst þau hafa reynst mér mjög vel, auk þess sem félög eins og SEM hjálpa fólki að vera virkir meðlimir í þjóðfélaginu, sem er gott fyrir alla.
Svo ef það er eitthvað sem þið hafið áhuga á að styrkja þá megiði endilega gera það.
Ég er með svona...einhvers konar tímamarkmið...ég er búin að komast að því að þegar ég rúlla á jafnsléttu (jafnslétta á Íslandi er samt yfirleitt einhver halli upp eða niður, svo þetta er svona til eða frá) er ég eiginlega á gönguhraða, sem er u.þ.b. 5 km/klst. Svo allt í kringum 2 tíma væri alveg frábært í mínum huga (þó ég svitni bara við tilhugsunina um að rúlla samfellt í 2 tíma).

Ég ætla að REYNA að setja inn einhverjar bloggfærslur en ef ekki þá er bara ár í næsta blogg ;)

















2 ummæli: