Ég er líka þakklát fyrir það að táknmál sé til því þetta er mjög skemmtilegt tjáningarform sem mér finnst ég geta notið mjög vel. mannleg samskipti felast mjög mikið í líkamstjáningu og stundum pirrar það mig að geta ekki notað allan líkamann til þess að tjá sig, en það er mjög mikilvægt í t.d. leiklist. Með táknmálinu get ég dansað og notað efri líkamann og svipbrigði til að tjá mig.
fimmtudagur, 15. október 2015
Táknmál er málið!
Hæhæ! Ég ætti að vera að læra núna en þar sem ég er svo mikil Jóna ákvað ég að gera eitthvað allt annað (sorry með mig). Þannig er mál með vexti að ég er komin með nýtt áhugamál...táknmál. Ég er í fyrsta táknmálsáfanganum í MH og þetta er bara ótrúlega skemmtilegt! Ég vildi óska þess að ég hefði lært þetta í grunnskóla, t.d. í staðinn fyrir lífsleikni, því mér finnst eiginlega bara fáránlegt að geta ekki einu sinni talað við samlanda sína! Auðvitað er það mjög einangrandi að vera döff manneskja (heyrnarskert/heyrnarlaus manneskja sem tilheyrir samfélagi sem notar táknmál) í samfélagi þar sem flestir kunna ekki táknmál. Það væri líka ótrúlega fínt ef að allir kynnu táknmál, þá væru kannski aðeins minni læti í skólum og það er t.d. mjög hentugt fyrir þá sem fara mikið á skemmtistaði þar sem enginn heyrir neitt í manni fyrir tónlistinni. Þá er fínt að geta sagt að maður þurfi að fara á klósettið eða sé til í einn kaldan á táknmáli.
Ég er líka þakklát fyrir það að táknmál sé til því þetta er mjög skemmtilegt tjáningarform sem mér finnst ég geta notið mjög vel. mannleg samskipti felast mjög mikið í líkamstjáningu og stundum pirrar það mig að geta ekki notað allan líkamann til þess að tjá sig, en það er mjög mikilvægt í t.d. leiklist. Með táknmálinu get ég dansað og notað efri líkamann og svipbrigði til að tjá mig.
Gígja, táknmálskennarinn okkar, kenndi hópnum táknmálsdans um daginn og núna er ég búin að vera að æfa mig mikið heima (þetta er erfiðara en ég hélt) og langar að deila þessu með ykkur og vonandi get ég sýnt ykkur hvað táknmál er frábært. Ég er nú ekki með allar hreyfingar á hreinu né svipbrigði (sem er mjöööög stór hluti af táknmáli) en vonandi kemur þetta með tímanum. Ég leyfði mér að vera pínu dívuleg í handahreyfingum (eða mér fannst það, hahaha) þar sem þetta er lag með Páli Óskari og hann er auðvitað bara díva Íslands.
Ég er líka þakklát fyrir það að táknmál sé til því þetta er mjög skemmtilegt tjáningarform sem mér finnst ég geta notið mjög vel. mannleg samskipti felast mjög mikið í líkamstjáningu og stundum pirrar það mig að geta ekki notað allan líkamann til þess að tjá sig, en það er mjög mikilvægt í t.d. leiklist. Með táknmálinu get ég dansað og notað efri líkamann og svipbrigði til að tjá mig.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Þú ert algjör dásemd. Ég er að springa úr stolti af þér fallega frænka mín.
SvaraEyðaTakk fyrir það! En það stendur bara unknown, hvaða skyldmenni er að tala við mig? ;)
EyðaMikið er þetta flott hjá þér og sjálf ertu svo góð!
SvaraEyðaTakk kærlega Njörður!
EyðaVel gert Jòna Kristìn. Stollt af þér og gaman að vita hvað maður getur haft smá áhrif nemendur �� kv. Gìgja
SvaraEyðaTakk, Gígja! Og auðvitað hefurðu áhrif, með þínum fimu fingrum og dillandi hlátri ;)
EyðaVel gert Jòna Kristìn. Stollt af þér og gaman að vita hvað maður getur haft smá áhrif nemendur �� kv. Gìgja
SvaraEyða